Árborgarhelvítin...

Tarf fara athuga med allt draslid mitt sem tessir laganna verdir hirtu af mér 18 október 06...  T.d. Antíkbók. Heitir Hampur, taeplega 40 ára gomul kilja. Tvæi ad bosta hana... og fullt af fjoltrngjum. Vifta. 50 7 ltr blómapottar eda svo. Og veit annars ekki hvad meira. Annars tarf bara staekka litla hraun. Hertaka nokkrar brýr. Og innlima svaedid.  Kristína.... or whatever. Atlandshafið í sudur. Tvaer jokulsár vestan og austan. Og oraevin í nordi. Fangelsismálin leyst. Tessir longu bidlistar. Málið leyst. Er á hradferd. Get ekki útfaert tetta betur, tarf ad rjúka
mbl.is Slagsmál og ölvun á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitað að blórabögglum...

Vinstri grænir...? Eiga þeir minnstu sökina á hruninu? Fyrir áratug var reynt mynda breiðfylkingu til ná samskonar fylgi og flokkur þess sem í dag er orðin puplic enemy number 1. Seðlabankastjórinn sem neitar að yfirgefa bygginguna við Arnarhól. Mennirnir sem voru á móti bjór og frjálsu útvarpi... og komnir í ríkistjórn. En ef VG hefðu ekki stofnað eigin flokk? Og þetta 10-15% fylgi sem þeir höfðu... eða hvað sem það var nú mikið. Samfykingin var í þessum 25-30% s.l áratug. Hverjum er um að kenna í raun og veru... kreppan. Hefðu kapítalistarnir verið með forsæti og fjármál landsins... síðasta áratuginn? Ef afturhaldsseggirnir hefðu ekki farið fram sér...
mbl.is Reynslulausir réðu í bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og svo brosir fólkið... ætli það skammist sín ekki baun?

Loksins... loksins. Að maður geti bloggað á ný... verið án internetsins.. alltof lengi
mbl.is Selja íbúð á Manhattan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjá hverjum vinna þessir þjónar?

sat inní lögreglubíl í síðustu. rífandi kjaft á minn hátt við tvö ungmenni nýskriðin úr lögguskóla. Ég vissi ekki betur en sýslumenn landsins séu þeir sem hafa yfir lögreglunni að segja. En þetta unga fólk virðist ekki vita undir hverjum þeir eru. Böggandi mann og eyðandi tíma mínum vegna glkæps sem ekki var búið að framkvæma...
mbl.is Segir sig úr Lögreglufélagi Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins nettengdur... í bili

langt síðan skrifað hér... tæpt ár. Margt gerst og lítið. En ennþá er maður jafngeggjaður og eldri blogg gætu sýnt. Eða bara verri. Við erum bara við í þessum heimi og þetta verið bara sem bið. Erum við upplifa hrun heimsins... síðustu tímar... er nóttin kominn eða erum við inní henni

Afleiðingar fasistanna...

Eða hvað á að segja? Kallandi laganna verði fasista. Þetta eru lögbrot... svona ofbeldi á ekki að vera á götum borgarinnar. En ástæðan sú að fíkniefnin eru ekki aðgengileg vegna þess þau eru ólögleg. Og á meðan misvitrir og þroskaðir einstaklingar eru starfandi sem þingmenn þessa lands og setja ekki á nauðsynlegar lagabreytingar... þá verður þetta bara svona og mun ekki gera annað en versna. Líkamsárásirnar væntanlega vegna vangoldinna fíkniefnaskulda eða einhver átök milli aðila sem tengjast undirheimum. Innbrotin framin til fjármagna ólöglega fíkniefnaneyslu ógæfufólks... En hvað skapar ógæfuna? Fíkniefnin? Ekki þau sjálf... það hafa verið gerðar tilraunar sem segja annað. Manninum var gefinn frjáls vilji. Og honum ætti að vera í sjálfvald sett hvort hann fái sér cannabis smók, línu í nös, droppi sýru eða gleypi alsælutöflu af og til. Svo er allt þetta stöff svo spennandi að því það er bannað. Hugmyndin um fíkniefnalaust Ísland vissulega göfug... en jafn heimskuleg. Það er alltaf framboð og eftirspurn... Og bannið kallar á ólögleg viðskipti þar sem fólk getur hagnast á innflutningi og sölu. Fíkniefni eru dýr neysluvara á Íslandi. Það kostar peninga að vera dópisti á klakanum. Og eru ekki allir rónar sem versla sér áfenga drykki í vínbúðum landsins??? Finnst það jafn réttlætanlegt og kalla þá dópista sem nota önnur vímuefni en þau löglegu. Afhverju getur dópistinn ekki bara lappað inní löglega eiturlyfjabúð? Og fagnað áramótunum í þeirri vímu sem hann sjálfur kýs.? Í stað þess upplifa sig sem glæpamann og vera jafnvel talinn öðrum óæðri í samfélaginu ef hefur verið bendlaður við fíkniefni. Burtu með bannið. Lögleiðum allt draslið og fækkum glæpamönnum...
mbl.is Líkamsárásir í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hver er þjófurinn??

Ég sé fyrir mér framtíð. Þar sem fólk fer í búðir og sækir það sem vantar til heimilisins og borgar ekki krónu. Það er engu hægt að stela. Því það er búið að afnema peningakerfi heimsins. Farið að vakna þið sofandi þrælar nútíma neyslusamfélagsins. Jólin að koma. Haldandi við lifum í kristnu samfélagi... hve yndisleg þið getið verið kristin einn dag á ári... Höldum áfram að stela sem mestru við getum úr búðum landsins vitandi það hverjir eru hinir raunverulegu ræningjar... standandi í biðröðum verslana látandi féflétta ykkur af þessum gráðugu fyrirtækjum, réttandi rafrænu kortin ykkar. Heiminum er stjórnað af glæpamönnum.
mbl.is Starfsfólk stelur helmingnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

en afhverju kostar matur?

Hvernig getur einn jarðarbúi selt öðrum eitthvað? Hvort sem um er ræða matvæli eða vörur. Ég hef einhverntíman sagt ég væri jafnaðarmaður. Skráður í Samfylkinguna sem er samt svo langt frá því teljast jafnaðarmannaflokkur. Herinn er farinn. Bandaríkjamenn lagðir á flótta. Gerum byltingu. Eða er hún ekki bara hafinn? Setjum á jöfnuð. Allir eyjabúar fái sömu upphæð inná reikninginn sinn 1 hvers mánaðar. Eða förum alla leið og afnemum peningana. Hver fann þá annars upp? Það er frítt í strætó á Akureyri og Reykjanesbæ. Er þetta upphafið? Og í haust varð frítt í strætó fyrir námsfólk. Frítt í sund fyrir börn í Reykjanesbæ. Vil fara sjá fleiri þjónustur gjaldlausar. Afhverju þarf fólk að vera sem fávitar með símana sína? Skafandi inneignir, pikkandi inn langar talnarunur eða greiðandi símareikninga. Kostar annars eitthvað að tala í síma? Reyndar farinn af stað þróun eins og frítt hringja í gsm eða heimasíma... eftir því í hvaða símafyrirtæki fólk er. Og orkumálin.... Hver á fallvötn landsins? Hversvegna þurfa þegnar landsins greiða fyrir rafmagn og hita? Ég sé fyrir mér sílenderslausa samfélagið...
mbl.is Matvælaverð aldrei hærra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

bræður munu berjast...

Bróðir minn heitir Þór. Samt ekki skýrður þannig. Bætti þessu við sem millnafni fyrir áratug. Alnafni hans hafði verið nafngreindur í fjölmiðlum vegna kókanínssmygls. Og talað um yngri bróðir, þeir deilt húsnæði... tuttugu ár síðan og við bræður þá búandi á sama stað... í gamalli sokkaverksmiðju við Brautarholt... þarna voru leigð út nokkur herbergi við heldur hrörlegar aðstæður. Leigjendurnir margir hverjir með bein tengsl við undirheima þess tíma. Faðir okkar á þessum tíma Óðinn... móðir okkar fimmgift en sennilega búið lengst með honum. Baldur í goðafræðinni jú bróðir Þórs og þeir synir Óðins. En Magni er svo sonur Þórs... kemur í ragnarökum... minnir mig frá heljum ásamt Baldri og Höð. Verið skráður utan trúfélaga tæp 4 ár... skráði mig þá úr þjóðkirkjunni. Samt kristinn en líka rammheiðinn. Og svo kraumar þetta allt þarna undir budha og muhamed... Bara aldrei verið viss. Eru þetta ekki bara allt börn síns tíma... hvar eru spámennirnir... englarnir..?

26 tíma varðhald...

handtekin í 7 sinn á árinu fimmtudag síðustu viku... í varðhaldi 26 tíma í Hverfissteini. lögreglumaður frá Hvolsvelli kom á hádegi til höfuðborgarinnar á föstudag, til fara yfir skýrslur vegna 3ja húsleita og 3 stopp vegna gruns um akstur undir áhrifum. Þvílík tímaeyðsla útaf engu. Verða þessir þingmenn okkar ekki að fara koma með frumvarp um breytingar... okkur var gefinn frjáls vilji. Hvað væri að því þeir sem kjósa önnur vímuefni en þetta mest eitraða, gætu haft aðgang að þeim gegnum apótek. Þetta er allt til hvort sem er. Og verður ekki upprætt. Burtu með glæpina af götum borgarinnar. Og þeir hverfa ekki með meiri hörku af hálfu fasistanna...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband